Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvoll var stofnað af gömlu hreppunum í Rangárþingi eystra. Rekstur heimilisins hófst 1. mars 1985, síðar var byggt við húsið og sá áfangi tekinn í notkun árið 1989. Árið 2018 var tekin í notkun ný viðbygging með 12 herbergjum, stórum matsal, betri aðstöðu fyrir starfsmenn og fl. Allir íbúar eru í einbýli, ýmist á herbergjum eða í litlum íbúðum, öll herbergi/íbúðir eru með neyðarhnappi og tengingu fyrir síma og sjónvarp.
Hönnun: Sveinn Ivarsson Arkitekt F.A.I.
Burðavirki. Lagnir og Lokafrágangur: Teiknistofa TPZ
